24.08.2008
Til að standa undir fjárfestingum við klakfisk á Hjalteyri og til að styrkja rekstur félagsins var ákveðið að auka hlutafé félagsins um allt að 50 milljónir. Um 71% þátttaka var í hlutafjáraukningunni og safnaðist 35.4 milljónir. Við þökkum þeim hluthöfum sem tóku þátt.
24.08.2008
Á undanförnum mánuðum hefur staðið yfir vinna við að koma upp aðstöðu fyrir klakfisk á Hjalteyri. Einum af gömlu lýsistönkunum hefur verið breytt og hefur sú framkvæmd tekist með ágætum. Inni í tankninum er nú 12 m eldisker auk tækjabúnaðar til að kæla og hita sjó.
Um 330 fiskar eru nú í kerinu og dafna þeir vel í frábærum aðstæðum.
28.05.2007
Nú eru liðin 20 ár frá því Ólafur Halldórsson og Erlendur Jónsson, heitinn, hófu leitina að sannleikanum um hinn heilaga fisk, sannleikanum um heilagfiskinn, eða lúðu eins og við jafnan köllum hann. Leitin hófst á hinum dulúðlega stað Hjalteyri og stendur enn. Það hefur komið í ljós að líkt og með lífið sjálft komumst við aldrei að öllum sannleikanum. Við færumst hins vegar alltaf nær honum, líkt og gerist þegar við sjálf eldumst. Hvernig til tekst í lífunu, og lúðueldinu, byggist að miklu leyti á því hvernig okkur tekst að tileinka okkur þann lærdóm sem við áskotnumst á leið okkar.
24.05.2007
Fiskey hf. var rekið með 71 milljóna tapi á árinu 2006. Mikill rekstrarbati er þó milli ára, þar sem tekjur hækka um 73% milli ára og nema um 217 milljónum á árinu 2006. Áframeldi í Þorlákshöfn var hætt á árinu sem skilar sér í lækkun flestra kostnaðarliða. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir er 11 milljónir og handbært fé frá rekstri var um 29 milljónir.
01.09.2006
Fiskey ehf. hefur nú verið sameinað móðurfélagi sínu, Fiskeldi Eyjafjarðar hf. Nafni Fiskeldi Eyjafjarðar hf. hefur enn fremur verið breytt í Fiskey hf. Fiskey hf. tekur því yfir allan rekstur, rekstrarfjármuni og skuldbindingar Fiskeyjar ehf. Markmið með breytingu þessari er að einfalda rekstur félagsins.
30.06.2006
Fiskeldi Eyjafjarðar hf. hefur nú verið afskráð úr Kauphöll Íslands.
15.05.2006
Hlutabréf í Fiskeldi Eyjafjarðar hf. eru nú skráð rafrænt hjá Verðbréfaskráningu Íslands (www.vbsi.is). Pappírshlutabréf eru nú ógild. Hluthafar geta fengið aðgang að hlut sínum með stofnun VS-reiknings í banka, sparisjóði eða verðbréfafyrirtæki, sem mun hafa milligöngu um stofnun reikningsins. Fiskeldi Eyjafjarðar hf. mun þó áfram hafa yfirumsjón með hlutaskrá, annast upplýsingaflæði til hluthafa varðandi aðalfund, og önnur skyld málefni.
Maí 2006
Rannsókna- og þróunarsjóri Fiskeyjar, Heiðdís Smáradóttir, lék stórt hlutverk í kvikmynd í fullri lengd eftir Örn Inga. Myndin heitir Flóttinn og Heiðdís lék þar lögreglukonu á sannfærandi hátt. Myndin hefur fengið mikið lof gagnrýnenda.
Jón Þór Brynjarsson, verkstjóri Fiskeyjar á Hjalteyri, setti saman framboðslista korter fyrir kosningar í Arnarneshreppi. Skemmst er frá því að segja að listinn fékk meirihluta atkvæða. Jón Þór skipaði efsta sæti listans og mun hann taka að sér að vera aðstoðar oddviti Arnarneshrepps, og verður aðstoðarmaður Axels Grettissonar sem skipar annað sæti listans.