Matfiskeldisstöð Fiskeyjar er í Þorlákshöfn.

Fiskurinn er fyrst alinn í kerjum sem eru innandyra, en þegar hann hefur náð ákveðinni stærð er hann fluttur í útiker. Útikerin eru yfirbyggð því lúðan á það á hættu að sólbrenna ef hún er ekki varin fyrir sólarljósi.  Hágæða borholusjór er notaður til eldisins sem er 7°C allt árið og einnig er hægt að hækka eldishitann með heitu vatni. 

Kostir lúðu sem matfisks eru að hún er með þétt hvítt hold, ekki bragðsterk en þó með auðkennandi bragð, lítið af beinum og geymist vel fersk. Helstu kostir eldisfisksins eru stöðug gæði og framboð, jöfn stærðardreifing og að auðvelt er að rekja uppruna vörunnar. Þessir kostir eldisfisks styrkja mjög markaðssetningu hans.

Matfiskeldi (lúðueldi) Fiskeyjar í Þorlákshöfn byggir alfarið á seiðaframleiðslu fyrirtækisins í seiðaeldisstöðinni á Hjalteyri. Eftir sex mánaða tímabil frá hrognatöku til þess að seiði eru orðin um 5 grömm að þyngd eru þau tilbúin til flutnings til Þorlákshafnar eða til eldisstöðva erlendis. Seiðin eru alin áfram í eldisstöðinni í Þorlákshöfn upp í um 3-6 kílógramma stærð en þá er fiskinum slátrað og hann seldur til viðskiptavina fyrirtækisins. Eldisfiskur hefur að langmestu leyti verið seldur heill og slægður á markaði í Norður-Evrópu og Bandaríkjunum.

Framleiðsla á matfiski hefur um árabil verið mest í Noregi. Áætluð hlutdeild Fiskeyjar í framleiðslu eldislúðu í heiminum hefur verið um eða innan við 10% undanfarin ár. Hún var 13 tonn árið 1999 en hafði aukist í 140 tonn árið 2003. 

Áframeldi Fiskeyjar í Þorlákshöfn var hætt á árinu 2006.  Áframeldi verður áfram stundað á Íslandi í Silfurstjörnunni sem er við Kópasker.

 

Þorlákshöfn