Sagan
Stjórn
Starfsmenn
Hluthafar


Stofnun og þróun Fiskeyjar
Fiskeldi Eyjafjarðar var stofnað á Hjalteyri við Eyjafjörð 28. maí 1987. Stofnendur félagsins voru 30 talsins, þar á meðal voru sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklingar. Fyrsta árið var notað til rannsókna og undirbúnings fyrir væntanlegt lúðueldi. Rannsóknir fóru fram á umhverfisþáttum sjávar í Eyjafirði eins og hitastigi, seltu og súrefni ásamt tegundasamsetningu og dreifingu dýrasvifs í firðinum. Einnig fóru fram athuganir á staðháttum á Hjalteyri með tilliti til uppbyggingar á framleiðslu lúðuseiða. Að síðustu var safnað smálúðu, sem var um 1,5 kg að meðalþyngd, til þess að sjá hvernig hún þrifist við aðstæður eins og í Eyjafirði. Eftir að þessum undirbúningsrannsóknum lauk og niðurstöður höfðu verið kynntar á aðalfundi félagsins í júní 1988 var tekin ákvörðun um að hefja framleiðslu lúðuseiða.

Markmiðið var að þróa aðferðir til fjöldaframleiðslu á seiðum og verða með fyrstu fyrirtækjum í heiminum til að markaðssetja eldislúðu. Í framhaldinu var keyptur hluti af gamalli óstarfræktri síldarverksmiðju á Hjalteyri. Miklar endurbætur voru gerðar á verksmiðjunni sem nú hýsir seiðaeldisstöð félagsins. Fyrstu seiðin hjá Fiskeldi Eyjafjarðar voru framleidd árið 1990 og var félagið eitt það fyrsta í heiminum til að framleiða lúðuseiði í eldisstöð. Þær aðferðir, sem höfðu verið þróaðar í Noregi og fyrst var horft til við fóðrun lúðulirfa, hentuðu hins vegar ekki og hófst því þróun annarra aðferða sem hefur með öðru leitt til þess að fyrirtækið er í fremstu röð í heiminum meðal þeirra fyrirtækja sem framleiða lúðuseiði.

Starfsemi Fiskeldis Eyjafjarðar einkenndist af rannsókna- og þróunarstarfi fram undir lok síðasta áratugar 20. aldarinnar þegar stærstu þröskuldar við seiðaframleiðsluna höfðu verið yfirstignir. Fyrsta framleiðsla af eldislúðu var seld á árinu 1999 og þá má segja að markmiðum, sem fyrirtækinu voru sett á árinu 1988, hafi verið náð. Meðal annars vegna þess árangurs hlaut Fiskeldi Eyjafjarðar Nýsköpunarverðlaun Rannsóknaráðs Íslands og Útflutningsráðs Íslands árið 2001. Verðlaunin hlaut Fiskeldi Eyjafjarðar fyrir margra ára rannsóknastarf og framleiðslu á eldislúðu. Auk þess valdi Atvinnumálanefnd Akureyrarbæjar Fiskeldi Eyjafjarðar sem fyrirtæki ársins á árinu 2000. Á árinu 1999 veitti atvinnumálanefndin Ólafi Halldórssyni, þáverandi framkvæmdastjóra félagsins, einnig sérstaka viðurkenningu fyrir störf hans hjá fyrirtækinu.

Uppbygging Fiskeyjar
Uppbygging félagsins hefur verið jöfn og stöðug auk þess sem þekking og færni sem fyrirtækið býr yfir hefur vaxið samhliða auknum rekstri. Rannsóknastarf félagsins til margra ára er nú að skila sér í aukinni framleiðslu á seiðum og eldislúðu til útflutnings. árið 2001 var hlutdeild Fiskeldis Eyjafjarðar í heimsframleiðslu á lúðuseiðum um 35%, að mati SINTEF (Description of the production technology and production results of halibut fry at Fiskey, Stiftelsen for industriell og teknisk forskning ved Norges Tekniske Högskole, 2002.) en um 25 seiðastöðvar eru í Noregi, Skotlandi og Kanada.

Stjórn
Stjórn Fiskeyjar hf. skipa: 

Kristján Ragnarsson -  stjórnarformaður
Gunnar Karl Guðmundsson - meðstjórnandi
Jón Kjartan Jónsson -  meðstjórnandi
Óttar Már Ingvason - meðstjórnandi
Þorsteinn Vilhelmsson - meðstjórnandi

Starfsmenn

Framkvæmdastjóri er Arnar Freyr Jónsson. Hann hefur starfað hjá félaginu frá árinu 1991 og hefur verið framkvæmdastjóri frá því í janúar 2002.  Arnar lauk B.Sc. gráðu í haffræði frá University of South Carolina í Bandaríkjunum árið 1990. Sími: +354 462 7489. Gsm: +354 863 1510. Netfang: arnar.jonsson[at]fiskey.is


Rannsókna- og þróunarstjóri  er Heiðdís Smáradóttir. Hún hefur starfað sem rannsókna- og þróunarstjóri frá árinu 2000. Heiðdís starfaði hjá Háskólanum á Akureyri á vorönn 2000, vann á sumrin á árunum 1995-1999 hjá Fiskeldi Eyjafjarðar við sumarafleysingar og við kennslu hjá Háskóla Íslands veturna 1997-2000. Hún lauk mastersgráðu í lífeðlisfræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og B.Sc. gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands 1996. Sími: +354 462 7489. Gsm: +354 891 7960. Netfang: heiddis[at]fiskey.is

Fiskey á árangur sinn í lúðuseiða- og matfiskeldi ekki hvað síst að þakka framsæknu og traustu starfsfólki. Fiskey hefur á að skipa starfsfólki með mikla reynslu í fiskeldi. Þekking og reynsla starfsfólksins er mikilvæg fyrir rekstur fyrirtækisins.


Í klakfiskstöð Fiskeyjar á Dalvík eru tveirstarfsmenn:
Óli Þór Jóhannsson stöðvarstjóri - olithor[at]fiskey.is
Elvar Þór Antonsson

Í seiðaeldisstöð Fiskeyjar á Hjalteyri eru fimm starfsmenn: 
Heiðdís Smáradóttir, rannsókna- og þróunarstjóri - heiddis[at]fiskey.is
Steindór Helgason, tæknistjóri - steindor[at]fiskey.is
Jón Þór Brynjarsson, yfirverkstjóri - jonni[at]fiskey.is
Jón Þór Benediktsson



Hluthafar

Fjöldi hluthafa í Fiskey hf eru 150 talsins og er heildar hlutafé félagsins 336,6 milljónir.  Tíu stærstu hluthafarnir eiga nálægt 91,7% hlutafjár í félaginu, en þeir eru (ágúst 2008):

Heiti %
Hafrannsóknastofnunin 28,6
Samherji hf. 19,7
Brim hf. 19,0
Atorka Group hf. 8,4
HB Grandi hf. 4,8
Tækifæri hf. 4,4
International Aqua - Tech Ltd. 2,4
Icelandic Group hf. 2,3
Arnarneshreppur 1,1
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins 1,0